15.02.2012 22:09

Fegurð dagsins

Ég get þessa köku bara ekki! 
Hún er svo alltof falleg!



Ég ætla hinsvegar að reyna við þessa gulrótaköku frá Evu Laufey um helgina í bland við lærdóminn & smá skemmtilegheit :)

-S

13.02.2012 22:02

Adele


Dúlla

11.02.2012 18:17

Afi minn!

Ætlar þú að elda rjúpu um jólin?
 (dettur þessi spurning í hug miðað við svarið)

Afi Júlli alltaf hress! :)

Sakn

-S


10.02.2012 20:07

tattoo!


Elska þessa staðsetningu!

Eigið góða helgi!

-S

09.02.2012 14:30

..



Ragna.is

Eitt orð: matarklám




08.02.2012 21:53

tomorrow

3.33% próf á morgunn, ég búin að læra í 3 daga en ekkert hefur síast inn í mitt ágæta heilabú. Líður eins og ég sé að fara í 100% lokapróf, frekar skrítin tilfinning. 

Skólinn nær svo sínum hæstum hæðum núna í febrúar þar sem jú kennarar velja þann mánuð þar sem allt á að gerast; stór verkefnaskil, próf, fyrirlestrar, verkleg kennsla etc.. Hvað er þetta með kennara?! hélt að þessu væri lokið þegar menntaskólaárunum lauk!  Spurning hvort maður verður eitthvað skárri ef maður fer út í kennslu?! hoh

Núna get ég ekki hugsað um annað en morgundaginn þ.e eftir skólann. Hann er planaður í smá verslunarleiðangur fyrir litla "nýfædda" vin minn (fæddist fyrir næstum 2 vikum en ég & Nensý höfum ekki komist í verslunarleiðangur, glataðar vinkonur!) & ultra-heimilisþrif þar sem næsta helgi fer í ultra-prófalestur! ugh

Og hitt sem ég get ekki leitt hugan af eru.....föt! Veit ekki hvort ég eigi að þora að segja þetta..... en á ca. einu og hálfu ári þá hef ég varla keypt mér flík hér á landi, held að það sé hægt að telja stykkin á fingrum beggja handa. 
Ca. 3 og hálfur mánuður í USA! 





Þetta er svolítið ég! Nema ég er aldrei með úr, langar það samt!

-S


04.02.2012 18:10

BloggBlogg & meira blogg

 Elska hvað margir eru farnir að tjá sig á veraldarvefnum. Finnst lang skemmtilegast að skoða bloggsíður & hef ég tekið eftir því hvað blogg rúnturinn lengist og lengist og má hann alveg lengjast enn meira.




Veist þú um einhverja skemmtilega síðu? 

Ætla að setja tengla á síður sem ég skoða asap hér inná! 

-S



27.01.2012 21:11

Umbra

Finnst Umbra vörurnar sem fást í Tekk Company svo skemmtilegar, sniðugar & flottar!

Kaup dagsins var:


Veit samt ekki með þessar myndir sem fylgdu. Gaurinn þarna er samt nokkuð kjút en myndin af kærustu hans snýr að veggnum...haha:)
Hversu fínt verður það að setja jólakúlur á klemmurnar um jólin?! Þá er það ákveðið!


Nú er bara að finna & prenta myndir...

Eigið góða helgi!

-S

26.01.2012 14:13

26.O1.2O12

Alltaf þegar ég horfi á myndbandið við lagið 212 e. Azealia Banks þá langar mig ógeðslega í þessa peysu!



Alltof kjút & kósý rétt eins og veðrið í dag...

Þurfti samt svo að komast í skólann í morgunn, mikilvægur tími en ekki séns! muhh

Eigið góðan brjálæðisdag sem mun enda vel. Það er ég alveg viss um! :)

-S

24.01.2012 14:54

11 mánuðir til jóla!

Þegar ég vaknaði í morgunn datt mér ekki annað í hug en að fara í þessum elskum í skólann. Tölum nú ekki um jogging buxurnar og hettupeysuna! 
Skór sem sumir elska að hata...
en eru svo mikið uppáhalds hjá mér!


Fallegt í Reykjavíkinni í dag

<3

-S

22.01.2012 12:46

sunnudags

Ég veit að 25 ára aldurinn nálgast (alltof hratt) en telst það nokkuð "gamal manna merki" að ég hlakki til að stilla á Rás 1 á eftir og hlusta á útvarpsleikhúsið?!



Egils saga á nútíma íslensku & flottir leikarar...ætla amk að gefa þessu séns!
Finnst Ingvar E. svo lúmskt hot eitthvað, þrátt fyrir að hafa séð hann í of stuttum buxum einu sinni!

Síðan er það auðvitað handboltaleikurinn & Contraband í kvöld og ætla ég að nota tækifærið að draga JÞ með mér í 7D bíóíð í skemmtigarðinum! (ok ég er ennþá smá barn í mér!)

En svona milli þessara "stóratburða" þá ætla ég að nýta tímann í ritgerðarskrifum um krabbameinslyfið Levact

Stuð að eilífu!

-S

15.01.2012 17:31

Systradagur & kósýheit

Í gær var systradagur hjá okkur systrunum & ákváðum við að kíkja í skemmtigarðinn. 

Þetta tæki var EKKI prófað! hah :) 


Sandra 

Tókum einn keiluleik


Fengum okkur að borða á Pizza Hut

Þrátt fyrir stútfulla Smáralind þá var þetta fínasta skemmtun & mikið af tækjum sem henta bæði ungum sem öldnum. 
Uppáhalds var án efa 7D bíóíð, án djóks þá langar mig sjúklega aftur í það og er búin að biðja Jón Þór að kíkja með mér næst þegar við kíkjum í Smáralind haha :) 

Annars hefur helgin aðalega farið í ræktina, lærdóm (minn þó en gert var ráð fyrir í upphafi helgar), tiltekt & í það að hlaða batteríin fyrir ókomna viku....

Stemmingin á heimilinu akkurat núna.
 Kerti og kósýheit!

Njótið!

-S


12.01.2012 21:15

Gauramynd!


Jón Þór með frændum mínum, Sören Cole & Victor Nóel 

Æðis-bitar allir 3!

-S