Færslur: 2012 Febrúar
26.02.2012 18:02
fótboltinr1
Á að vera mætt í afmæli sem byrjaði kl 18:OO en vegna 2 x 3O mínútna framlengingu á fótboltaleik þá komum við of seint! Veii
Annars í rólegheitunum mínum við að gera mig ákvað ég að taka fram gallajakkann..kanski svolítið snemma í því veður-lega séð en hann er svo mikið uppáhalds!
En svona á meðan ég er að bíða....þá fórum við Jón Þór ásamt Ásdísi & Árna á Mið-Ísland á föstudaginn í Þjóðleikhúsinu mjög skemmtilegt uppistand! Langar núna smá að fá mér stöð2 til þess að horfa á þættina sem byrja bráðum...neitakksamt!
Hituðum okkur upp á Roadhouse, sem féll vel í kramið hjá okkur öllum og kíktum smá menningarrúnt í Hörpuna fyrir sýningu, en þessi bygging kom mér skemmtilega á óvart. Fékk samt smá flugstöðva stemmingu þegar ég kom upp rúllustigann frá bílakjallaranum....
Nú ættu 1 x 15 mínúturnar að vera búnar og ætla ég að nota seinni 15 mínúturnar að finna skó (sem þurfa að vera með lokaðri tá þar sem ég er með huge gat á sokkabuxunum lol)
-S
Skrifað af Sólveig
26.02.2012 13:32
Pinterest.com
Er orðin svo húkt á Pinterest!
Allskonar sniðugar hugmyndir þar sem maður vill kanski prufa að gera einhverntíman eða bara njóta.


Mynd + krukka + olía

Fjölskylduveggurinn

Ef maður hefur allan tímann í heiminum

Glært naglalakk + augnskuggi blandað saman



Koma skipulag á frystinn svona 1x!

Eða dást að fallegum karlmönnum
Karlmenn & börn = HOT!
Komið og follow-umst!
-S
Skrifað af Sólveig
22.02.2012 23:11
be fab!

Loxins er hægt að stunda siðfágað e. classy kynlíf
Verst er að það eru bara 5 í pakka
Eitt orð, njótið!
-S
Skrifað af Sólveig
19.02.2012 20:53
-
Undanfarið í boði NOKIA

Febrúar = klikkaðasti mánuðurinn í skóla-sögunni!

7 daga hreinsun í boði Ásdísar Rögnu grasalæknis
Verkleg æfing í tölfuslætti
Lyfjafræðideildin hefur til umráða allra flottustu græjurnar........naaawt!
2OO mg Íbúfen töflur CHECK!
Hárið komið niður á brjóst og sólin farin að skína lengur
Jón Þór & Victor Nóel að hafa það kósý
Gulrótakakan (hér) ásamt "meðlæti".
Smá forskot á bolludaginn
-S
Skrifað af Sólveig
15.02.2012 22:09
Fegurð dagsins
Ég get þessa köku bara ekki!
Hún er svo alltof falleg!

Ég ætla hinsvegar að reyna við þessa gulrótaköku frá Evu Laufey um helgina í bland við lærdóminn & smá skemmtilegheit :)
-S
Skrifað af Sólveig
11.02.2012 18:17
Afi minn!
Ætlar þú að elda rjúpu um jólin?
(dettur þessi spurning í hug miðað við svarið)
Afi Júlli alltaf hress! :)
Sakn
-S
Skrifað af Sólveig
08.02.2012 21:53
tomorrow
3.33% próf á morgunn, ég búin að læra í 3 daga en ekkert hefur síast inn í mitt ágæta heilabú. Líður eins og ég sé að fara í 100% lokapróf, frekar skrítin tilfinning.
Skólinn nær svo sínum hæstum hæðum núna í febrúar þar sem jú kennarar velja þann mánuð þar sem allt á að gerast; stór verkefnaskil, próf, fyrirlestrar, verkleg kennsla etc.. Hvað er þetta með kennara?! hélt að þessu væri lokið þegar menntaskólaárunum lauk! Spurning hvort maður verður eitthvað skárri ef maður fer út í kennslu?! hoh
Núna get ég ekki hugsað um annað en morgundaginn þ.e eftir skólann. Hann er planaður í smá verslunarleiðangur fyrir litla "nýfædda" vin minn (fæddist fyrir næstum 2 vikum en ég & Nensý höfum ekki komist í verslunarleiðangur, glataðar vinkonur!) & ultra-heimilisþrif þar sem næsta helgi fer í ultra-prófalestur! ugh
Og hitt sem ég get ekki leitt hugan af eru.....föt! Veit ekki hvort ég eigi að þora að segja þetta..... en á ca. einu og hálfu ári þá hef ég varla keypt mér flík hér á landi, held að það sé hægt að telja stykkin á fingrum beggja handa.
Ca. 3 og hálfur mánuður í USA!


Þetta er svolítið ég! Nema ég er aldrei með úr, langar það samt!
-S
Skrifað af S
04.02.2012 18:10
BloggBlogg & meira blogg
Elska hvað margir eru farnir að tjá sig á veraldarvefnum. Finnst lang skemmtilegast að skoða bloggsíður & hef ég tekið eftir því hvað blogg rúnturinn lengist og lengist og má hann alveg lengjast enn meira.

Veist þú um einhverja skemmtilega síðu?
Ætla að setja tengla á síður sem ég skoða asap hér inná!
-S
Skrifað af S
- 1




