13.05.2012 19:06
Bella´s Choice H&M
Skellti á mig þessu sumarlega naglalakki fyrir vinnu á föstudaginn. Langtlangtlangt síðan ég setti seinast á mig naglalakk enda eru neglurnar ekkert til að hrópa húrra fyrir. Vona að þær lagist yfir sumartímann - kenni skólanum um allt stessnagið!
-S
Skrifað af Sólveigu
13.05.2012 15:23
Tiltekt
Er að taka til í skápunum hjá mér/okkur. Á pantaðan bás í Kolaportinu þann 2. júní og á allt að seljast! Setti inn myndir af nokkrum flíkum á facebook þar sem ég efast um að ég komist með allt fjallið með mér í kolaprotið - þetta er svo mikið!




og fleira og fleira
facebook albúmið má sjá hér (verðið að vera logguð inn á fb)
-S
Skrifað af Sólveigu
11.05.2012 21:07
Ó Dorrit
Í hverju er konan?
Ein af Turtles?!?
Spunadís er samt flott!!
-S
Skrifað af Sólveigu
10.05.2012 20:21
Tryllitæki dagsins
Fékk þennan ostaskera um daginn sem smá "sárabót" þar sem gleymdist að senda mér eitt Tupperware grænmetisbox af fjórum sem ég pantaði fyrir löngu.
Finnst hann frekar funky, sker víst frekar þykkar sneiðar en mér finnst þykkar ostsneiðar einmitt svo góðar - borða samt svo sjaldan ost og ef ég kaupi þá kaupi ég ost sem er í sneiðum...
Hann þarf því að dúsa niðrí skúffu & bíða tækifæris...
-S
Skrifað af Sólveigu
10.05.2012 15:40
1O.O5
Það kom að því! Prófin búin....
Sit hérna heima - íbúðin er gjörsamlega í rústi en ég hlammaði mér í sófann og er byrjuð að setja í "körfu" á F21...æji þetta má!
Byrja svo að vinna í nýju sumarvinnunni minni strax á morgun!
Spennt en smáá kvíðin - svona eins og fylgir þegar maður er að byrja í nýju jobbi.

Fékk mér þennan í hádeginu þegar við stelpurnar fórum að borða á Vegmótum eftir prófið - var samt búin með einn bjór áður sem ég opnaði strax eftir prófið. Metnaður!
Á morgun byrja ég einnig í þjálfun hjá Betri Árangri þannig að næst þegar ég blogga þá verð ég orðin druuullu mjó!
Lefi ykkur að fylgjast með..
-S
Skrifað af Sólveigu
08.05.2012 15:05
hot body - inspiration





Ókei ég varð að setja þessa með haha - alltof slæmt!
Góðir & spennandi tímar framundan! Búin að segja stopp & skráði mig í fjarþjálfun hjá betri árangri (nei ég stefni ekki á að keppa í fitness). Byrja núna á föstudaginn þannig að só sorry guys en þá verður enginn bjór fyrir mig þangað til ég veit ekki hvenær - fæ mér kanski 1 amerískan úti og "nokkra" núna á fimmtudaginn til að halda upp á próflokin. Stefni á að opna þann fyrsta um kl 11:00!
Er ekki alltaf sagt að hlutföllin séu 70/30 matarræði og hreyfing? - er drulludugleg að mæta í ræktina þó ég segi sjálf frá (kanski aðeins minna í prófatíð) en mataræðið er ekki eins gott þannig að nú er það bara að spýta í lófana og gefa allt í botn!
Jón Þór er líka orðinn svo mikill gym-kall, mætir alltaf á morgnanna fyrir vinnu - eitthvað sem ég hélt að myndi gerast á minni/okkar lífstíð, enda var hann búinn að segjast ætla að fara að stunda líkamsrækt í nokkur ár áður en ekkert varð úr því. Orðinn enn meira hotness!
En eruð þið búin að skoða árangursmyndirnar hjá betri árangri á fb? Holymoly. Það var ein ástæðan fyrir því afhverju ég valdi þessa þjálfara ásamt því að ég held að þau sé með rosalega mikið aðhald, en það er eitthvað sem ég þarf!
Persólulegt blogg bara fyrir ykkur!
Size 0 here I come
Djók
-S
Skrifað af Sólveigu
07.05.2012 19:14
Boston MA
Þetta lítur ágætlega út - rigningin verður vonandi horfin eftir 16 daga!
woop!
Skrifað af Sólveigu
04.05.2012 11:42
Lampar





Ókei ég er in love!
Lzf lampar - sjá nánar um þá og fyrirtækið hér
Þeir kosta frá 300-11.500$
Sá þá fyrst á facebook síðu hjá Módern - þarf bókað að kíkja í þessa búð í sumarfríinu mínu
Beautiful!
-S
Skrifað af Sólveigu
03.05.2012 18:25
-
Þessi Patricia Krentcil (ef þið viljið googla hana eitthvað frekar - mæli með mugshot myndinni af henni) er eitthvað dingdong
Þarf ekkert að segja neitt frekar
Ég fékk mitt tan í Metabolic tímanum áðan sem var úti - bara hressandi!
-S
Skrifað af Sólveigu
01.05.2012 22:10
skór

Þessir finnst mér sjúkir!





Allir frá F21
22 dagar í mína yndislegu Boston
-S
Skrifað af Sólveigu
30.04.2012 19:26
3O.O4.2O12
Kláraði próf númer tvö í morgun en það næsta er ekki fyrr en eftir viku. Ákvað því að gera ekkert í dag tengt næsta prófi nema kanski að skipuleggja lesturinn fyrir næstu daga. Kvöldinu verður eytt með kæró jejj! :)
Ákvað að fríska aðeins upp á heimilið sem var sjálft með prófljótu með uppáhalds KENT!
Svo gott efni og líka svo gaman að nota það - ekki eins og margir brúsar sem eru með bilaða pumpu!!
-S
p.s. já ókei ég er alltaf í IloveNY peysunnu minni heima!
Skrifað af Sólveigu
29.04.2012 08:40

Nýjasta parið að spóka sig um

Christian Louboutin - $785
?
KW ætti hins vegar að kaupa sér belti - eða girða upp um sig í bílnum :)
-S
Skrifað af Sólveigu
25.04.2012 19:38
dagsins
Fór í próf í morgun, það fyrsta af fjórum - gekk bara vel
Á leiðinni í prófið fékk ég loksins að finna fyrir vorinu, en ég búin að sitja inni alla daga síðan sólin lét fyrst sjá sig - Jón Þór er sem sagt ekki búin að þrífa svalirnar.
Ekki langt í laufblöðin
Eftir prófið þá fór þreytan að segja til sín - ótrúleg hvað hún kemur í bakið á manni eftir próf ásamt tilheyrandi hausverk. Ákvað að taka stutta lögn sem endaði í 2 1/2 klst, missti þ.a.l af langþráðum Metabolic tíma og fékk ég mér pizzu í staðin ...damn
skinku & ananas - uppáhalds
Nú fæ ég mig ekki til að opna bók fyrir næsta próf. 50% afslátturinn á filma.is togar meira í mig en lyfjahvarfafræðibókin og svo er líka heimildamynd á Rúv um 22 leytið um Joseph Kony sem mig langar smá að horfa á...
En þangað til næst, eigið gott miðvikudagskvöld
-S
Skrifað af Sólveigu



